26.3.2008 | 22:50
Aftur komin vetur
Nú bara snjóar í minni sveit, kalt og lítið spennandi. Búin að melta páskaeggið mitt
og bara aðeins smakkað á páskaeggi eiginmannsins, varð nú aðeins að hjálpa honum
! Páskagestirnir farnir til síns heima og framundan er bara lærdómur
og aftur lærdómur með smá (70%) vinnu sem að vísu er alltaf að slíta í sundur fyrir manni daginn. En allt tekur þetta enda, (ég er greinilega í smá bjartsýniskasti
) og mikið verður gaman eftir 9 mai.
þá tekur við smá sumarfrí og síðan vinna á sjúkrahúsini á Egilstöðum í sumar. Best að hætta þessu rausi og koma sér í rúmið....... vakt í fyrramálið og næturvakt annað kvöld
. kv, Kolbrún Pé.
Athugasemdir
Já páskaeggin bragðast alltaf vel, og málshættinir eru skemtilegir ég fékk í mínu eggi Enginn kennir það öðrum er ei kann sjálfur, svo þá er bara að fara að vera duglegur að læra, vona að þér gangi vel, kveðja Sjana
Kristjana Jónsdóttir, 28.3.2008 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.