Launahækkun

Halló allar, ef einhver af skólasystrum mínum lesa þetta, þá langar mig að vita hvernig ykkur gekk að fá þá launahækkun sem okkur bar að loknu námi. Hjá mér gekk það eins og í sögu, sendi bara ljósafrit af námsskírteininu og ósk um launahækkun og bara ekkert mál. Svo nú er ég dálítið montin með mig. Vonandi hefur þetta gengið vel hjá ykkur öllum.

Annars er allt gott að frétta hér af bæ, örlítið skrýtið að vera ekkert að hugsa um námsbækur núna, en samt farið að velta fyrir sér hvað skuli gera á komandi hausti. Ekki alveg í lagi með mann ! Svo núna dunda ég við að prjóna, sauma bútasaum eða sauma föt á baby born dúkkur. Fyrir ykkur sem hafið gaman af prjónaskap þá er ein góð síða sem heitir www.garnstudio.com það er ekkert vandamál að missa sig þar. 

Bestu kveðjur til ykkar, kolbrún Pé.


Fríið fljótt að líða, hvert fór það ?

Sælar allar saman. Merkilegt hvað öll frí eru fljót að líða Woundering, ég þarf að fara að vinna 24 ágúst að ég held. Passa mig á að skoða ekki vaktarskýrslu ! ! Annars allt gott að frétta héðan, rjúpurnar farnar að gera sig heimkomnar í garðinum hjá mér. Einn morguninn þegar ég opnaði útidyrnar þá stóðu þar átta stykki og mændu upp á mig, það mætti halda að þær héldu að matar væri að vænta W00t . Síðar um daginn voru þær orðnar fjórtán.  Jóla, hvað ! !GetLost . Að vísu borða ég yfirleitt ekki rjúpur.  Það er að byrja koma smá skólafiðringur í mann, en skrítið verður þegar þetta námsbröltið verður búið. Hvað skyldi þá taka við, spennandi Undecided. Jæja hætt þessu rausi í bili, eigið þið bara góða daga. kv, Kolbrún Pé.


það er komið sumarfrí !

Halló, allar saman.  Þá er loksins komin almennileg Smile  hlýindi hér í minni sveit.  Í dag fór hitinn upp í 22° í sólarlausu Cool  veðri og logni, alveg yndislegt.  Nú er ég búin í verknáminu og er afskaplega ánægð með það, og komin í langþráð sumarfrí Joyful  . Best væri að geta verið úti á lóð allan daginn og reytt arfa úr blómabeðum, og snyrta í kringum sig það er nú ekki leiðinlegt í svona góðu veðri. Hafið þið það sem allra best, kveðja Kolbrún Pé.

Mikill fjölbreytileiki !

það er ekki von þó að íslendingar geti alltaf talað um veðrið. Í gærkveldi kom ég heim frá Egilst. og fór Hellisheiðina sem er að vísu ansi há, mig minnir meira en 600 m. yfir sjávarmáli. Það var frost uppi og snjóföl á vegi W00t ! Í dag hefur slyddað á láglendi hjá mér, hvítt af snjó niður í miðjar hlíðar og Hellisheiðin orðin ófær W00t ! Ég fer nú bara að athuga þetta með dagartalið, ég hélt að það væri komið sumar ! ótrúlegt, ég segi ekki annað. Annars er veðrið Happy búið að leika við okkur austfirðinga það sem komið er af þessu sumri, þar til nú.

Nú er ég hálfnuð með verknámið mitt og allt gengur vel, nóg að gera hjá HSA á Egilst. Búin að vera í heimahjúkrun eina viku og þvælast um allar sveitir héraðsins. Ég vinn tíu vaktir í lotu (ein vakt á hverjum degi) og á svo gott helgarfrí þess á milli. Þetta er að vísu dálítið Pinch strembið en allt tekur þetta enda og þá verður maður afskaplega feginn. Hafið þið það sem allra best, kveðja, Kolbrún Pé.


Búin með 1/4

Halló, þá er ég komin heim í sólina og í afslöppun Joyful .  Búin að skila af mér tíu vöktum á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum, og það verður að segjast að það var nóg að gera, tuttugu og sex manna deild og mikil veikindi Sick  á þeim sem þar dvöldu. Næsta lota hjá mér verður á heilsugæslunni/heimahjúkrun á Eg.st. Hlakka til.Happy Margt að því sem talið er upp í gátlistanum frá skólanum eru að vísu nákvæmlega það sama og maður hefur gert í gegnum tíðina hérna heima, því starfsfólk á svona litlum og fámennum vinnustað eins og hérna á Vopna vinnur mun sjálfstæðara en á stóru sjúkrahúsunum og vinnur oft verk sem hjúkkurnar Whistling  eiga að gera. En eftir þetta námsbrölt verður maður víst lögleg gagnvart ýmsum verkum sem maður vinnur og ekki spillir fyrir ef launin hækka eitthvað að ráði Joyful . Jæja stelpur mínar, hafið þið það sem allra best, kveðja, Kolbrún Pé.

Það sem manni dettur ekki í hug !

Jæja stelpur mínar, ýmislegt er ég búin að afreka síðastliðna viku.  Hreingera hálft húsið hjá okkur hjónakornunum, og mikið fja... Devil  var mikið ryk og drasl, veit ekki hvaðan þetta kemur, eða þannig sko. Þegar loksins fór að hlýna, þá út í garð, moka mold og klippa runna, var að verða vitlaus og stórslösuð ! ! (jæja, örlitlar ýkjur) við að hreinsa undan hansarósunum, svo það endaði með því að ég klippti Angry  þær niður í stubba! ! ! Rúsínan í pylsuendanum var sú, að frúin hún ég, ákvað að gera SLÁTUR og gerði það, og nú sýður í mínum sláturpotti, í maí mánuði. Maður er nú örlítið Whistling  bilaður. Svona er það þegar allt á að gerast í einu. Okkur hjónakornunum var boðið á árshátíð Happy  Granda til Reykjavíkur, ókeypis flug frá Egilst - Reykjavík - Egilst, frí hótelgisting m/morgunverði, auk kvöldverðar á árshátíðinni, en þetta er auðvita á fyrstu vinnuhelginni minni, alveg dæmigert, svo það er bara best að vera bara ánægð Smile  í vinnunni sinni og gleyma þessu. Gengur betur næst. Kveðja til ykkar allra, Kolbrún Pé.

Gaman, gaman.

Á fullu við að taka til í kotinu, ekki veitir af, þvílíkt ryk ég held að það séu mörg ryklög hvert ofan á öðru, Whistling segi bara svona. Prófin búin eins og við vitum og ég bíð bara sali róleg eftir útkomunni. Héðan eru engin próf send fyrr en öll próftaka fjarnáms ( voru bara 39 í vor hafa mest farið yfir 60 á önn), er búin og hér er mikið um að fólk sé í fjarnámi.  Svo er mín komin í viku sumarfrí Grin  áður en verknámið byrjar og ætlar að gera Pinch  ALLT á þeim tíma, þrífa húsið, garðinn, setjast við saumavélina og svo framvegis. kveðja til ykkar allra, Kolbrún Pé.

Orkusöfnun.

Jæja, þá er að safna orku í næstu próflotu, ég held að þetta próf verði léttara. Eins gott, maður er eins og undin tuskaSleeping. Meira hvað maður tekur hlutina alvarlega, ég ætti að vera búin að  læra á fjarnám og þann feril, tók sjúkraliðan í fjarnámi og ætti því ekki að láta framhaldið pirra mig svona. Ég held að við gerum alltof miklar kröfur til okkarCool, okkur vantar eitthvað af kæruleysi unga fólksins.

Hvað með það, í gær brugðum við okkur einar fjórtán starfsstúlkur af hjúkrunardeildinni hérna heima í rútuferð til FáskrúðsfjarðarGrin, þangað var búið að bjóða okkur að skoða elliheimilið þar. Að sjálfsögðu beið okkar gott kaffi með öllu tilheyrandi að aflokinni skoðunarferð og upplýsinga um aðstæður aldraða á Fáskrúðsf. Alltaf gaman að sjá aðstöðu aldraða annars staðar.                                                                                                                                                Ferðin endaði með kvöldverð á gistiheimilinu Egilsstöðum, þangað mæli ég með að fólk fari ef það vill eiga notalega kvöldstund og fá gott að borðaHappy  í leiðinni.kv, kolbrún Pé.


Þarf að fara og gróðursetja tré ! !

Ég segi nú ekki annað. Var að skoða glærurnar um krabbameinslyfin, ekki nema 134 glærur ! ! Frown  Gróðursetja fleiri tré, fyrir væntanlegt pappírsaustur.Whistling Eins gott að þetta lesefni er ekki til prófs. Nóg er nú allt hitt lesefnið. Undanfarna daga hefur verið sól og gott veður frá morgni til kvölds hérna hjá mér og allt annað en lestur til prófs efst á vinsældarlistanum. Langar mest á fjóra fætur úti í garði og fara að rótast í moldinniSmile , en það á víst ábyggilega eftir að koma hret með snjó og kulda áður en vorið kemur fyrir alvöru hérna hjá mér. kv, Kolbrún pé.

Letikast (eitthvað nýtt ? )

Góðan daginn allar saman. ákvað að læra ekkert í dag, var að vinna í gærkveldi og aftur á vakt í kvöld og næsta kvöld, svo það verður bara afslöppun í dag.Whistling Tíminn flýgur frá manni og lítið festist í kollinum, spurning um gráa svæðið í heilanum Devil, léleg virkni ! ! Á ég að kynna fyrir ykkur þannig einkenni, eða kannast einhver við þau ? Voðalegt svartsýnisraus er þetta hjá mér. ja svei !

Það er gott veður hjá mér í dag, Cool sól og blíða, og "litlu kanínubörnin (lóin á parketinu) sjást hlaupa út um allt hús" (reyndar löngu orðin stálpuð hjá mér, he, he).

 Litla barnið mitt strákurinn, að verða 32 ára á mánudaginn (hvenær var ég eiginlega að þessu ? Errm ?) og það eldra dóttirin, loksins að skila sér heim en hún er búin að vera að vinna úti í Afganistan í 14 mán. Hætt í bili, búin að fá smá útrás við tölvuna, annað en að læra, kv, kolbrún Pé. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband